Gert er ráð fyrir hækkun á vistunar-og fæðisgjöldum í leik- og grunnskólum á Akureyri um 3% um áramótin. Þá er einnig lagt til að gjaldskrá Tónlistarskólans hækki um 3%. Meirihluti fræðusluráðs hefur samþykkt að vísa tillögunni til staðfestingar í bæjarráði.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Vg í fræðsluráði gera athugasemdir við þessar hækkanir. Í tillögu þeirra Rósu Njálsdóttur M-lista, Marsilíu Dröfn Sigurðardóttur D-lista og Þuríðar Sólveigar Árnadóttur V-lista er m.a. lagt til að ávaxtaog mjólkuráskrift í grunnskólum Akureyrarbæjar verði gjaldfrjáls frá og með 1. janúar 2019. Einnig að boðið verði upp á frían hafragraut í morgunmat í öllum grunnskólum Akureyrarbæjar.
Jafnframt er lagt til að ekki verði heimiluð hækkun á gjaldskrá vegna hádegisverðar í grunnskólum Akureyrarbæjar og ekki verði heimiluð hækkun á gjaldskrá vegna fæðis í grunnskólum. Meirihluti fræðsluráðs hafnar þessum tillögum minnihlutans.
Komi til móts við barnafjölskyldur
Í bókun minnihlutans segir að lækkun eða afnám fæðisgjalda í grunnskólunum sé einn þáttur í því að koma til móts við barnafjölskyldur hvað varðar útgjöld, minnka álag á heimilum og stuðla á þann hátt að því að öll börn myndu hefja sinn skóladag mett og í góðu jafnvægi. Í bókun meirihluta fræðsluráðs segir að gengið hafi verið út frá því að gjaldskrá mötuneyta í leikskólum standi undir hráefniskostnaði og gjaldskrá mötuneyta í grunnskólum standi undir bæði hráefnis og rekstrarkostnaði.
Kanna möguleikann á fríum hafragraut
„Gert er ráð fyrir að 3% hækkunin sem lögð er fram muni mæta auknum hráefniskostnaði í leikskólum og grunnskólum árið 2019. Nú þegar er hafragrautur í boði fyrir grunnskólanemendur í byrjun dags í flestum skólum,“ segir í bókun meirihlutans. Þá segir einnig að sviðsstjóra hafi verið falið að gera úttekt á málinu og kanna möguleikann á að bjóða upp á hafragraut í öllum grunnskólum bæjarins.