Fæðingum hefur fækkað verulega

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri.

Starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur aukist miðað við sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram  í pistli Bjarna Jónassonar, forstjóra SAk á heimasíðu sjúkrahússins.

Þar kemur fram að mest er aukning á fjölda sjúkrafluga eða um 15 prósent og eru þau 308 það sem af er árinu. Einnig hefur komum á bráðamótöku fjölgað um 3 prósent. „Einnig hefur komum á dag- og göngudeildir í heild fjölgað og þá hefur rannsóknum fjölgað nokkuð. Átakið við að stytta biðtíma eftir aðgerðum gengur vel og samkvæmt áætlun,“ skrifar Bjarni.

Athygli vekur að á sama tíma hefur fæðingum fækkað frá síðasta ári um heil 13 prósent og eru aðeins 144 það sem af er árinu. Þetta er þróun sem hefur verið að eiga sér stað frá árinu 2010 þegar metfjöldi varð á fæðingum hjá SAk eða 515 alls. Fæðing­um á landinu öllu hef­ur jafnframt fækkað mikið frá 2009 en það ár fædd­ust 5.015 börn og hafa aldrei fæðst fleiri börn á Íslandi en á því ári. Það ár fæddust 446 börn á SAk. 

Samkvæmt ársskýrslu SAk fæddu á árinu 2016, alls 389 konur 392 börn, 180 stúlkur og 212 drengi á SAk. Það er langt neðan við meðaltal síðustu 10 ára sem er 437 og ef fram heldur sem horfir munu fæðingar verða enn færri í ár.

Nýjast