„Erum ekki að fara í róttækar aðgerðir“

Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Mynd/Þröstur Ernir
Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Mynd/Þröstur Ernir

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrar, segir það ekki standa til að umbylta rekstri Öldrunarheimila Akureyrar frá núverandi mynd. Eins og Vikudagur fjallaði um í síð­asta blaði vinnur KPMG nú að athugun fyrir hönd bæjarins þar sem m.a. er til skoðunar hvort skynsamlegt sé að breyta ÖA í sjálfseignarstofnun. Þeirri vinnu er áætlað að ljúki í maí nk.

Halldór S. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, sagði óvissu um framtíð ÖA, og óvissa um áherslur í málefnum aldraða
vera íþyngjandi fyrir starfsemina og vaxandi óróleiki væri á meðal starfsfólks ÖA og aðstandenda heimilisfólks.

Lengri frétt um málið má nálgast í Vikudegi.

Nýjast