Rit Ársæls Más Arnarssonar, prófessors við HA, Síðustu ár sálarinnar var í gær tilnefnt til Viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, ásamt níu öðrum. Félagið kynnti tilnefningarnar í Grófarhúsi við Tryggvagötu í gær, fimmtudag.
Í riti Ársæls er fléttað saman á líflegan hátt hugmyndum ólíkra fræðigreina um sálina, allt frá Forn-Grikkjum til vorra daga.
Tilnefningarnar voru kynntar í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Borgarbókasafnið en Viðurkenning Hagþenkis 2016 verður veitt í Þjóðarbókhlöðunni um mánaðarmótin febrúar og mars. Verðlaunin nema einni milljón króna
Hagþenkir hafa veitt viðurkenninguna frá árinu 1986 en árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur sem kæmu til greina. Fimm manna Viðurkenningarráð stendur að valinu og að þessu sinni er ráðið skipað þeim Baldri Sigurðssyni, Guðnýju Hallgrímsdóttur, Kristni Hauki Skarphéðinssyni, Sólrúnu Harðardóttur og Þórunni Blöndal.
Hagþenkir og Borgarbókasafnið standa fyrir kynningu á tilnefndum verkum á Degi bókarinnar 23. apríl.