Eliza Reid forsetafrú flyturávarp á brautskráningu HA

Ljósmynd: Háskólinn á Akureyri/unak.is
Ljósmynd: Háskólinn á Akureyri/unak.is

Næstkomandi laugardag kl. 11 fer fram Háskólahátíð — brautskráning frá Háskólanum á Akureyri í fjórða sinn í hátíðarsal háskólans. Kandídötum og gestum þeirra, starfsfólki og boðsgestum er boðið á hátíðina.

Að vanda verður brautskráningunni sjónvarpað beint á sjónvarpsstöðinni N4 og hefst útsending kl. 11. Þar að auki verður hægt að horfa síðar á útsendinguna, bæði á vef HA og N4. Móttökur fræðasviðanna hefjast kl. 13 og þangað eru allir velkomnir. HA og Góðvinir Háskólans á Akureyri bjóða upp á léttar veitingar og húsnæði skólans verður opið til skoðunar.

Í tilefni af 30 ára afmæli háskólans verður þeim sem luku bakklár- eða meistaraprófi fyrir 10 og 20 árum (brautskráningarárgangar 1997 og 2007) sérstaklega boðið í móttökurnar.

Undanfarin ár hefur hefur skapast sú hefð að heiðursgestur ávarpi kandídata. Í fyrra hélt kanadíski sendiherrann Stewart Wheeler mjög hvetjandi ræðu þar sem hann gaf kandídötum góð ráð í veganesti. Árið áður flutti frú Vigdís Finnbogadóttir ávarp á sögulegri brautskráningu þar sem aðeins konur gegndu hlutverki sviðsforseta. Í ár mun Eliza Reid forsetafrú heiðra gesti hátíðarinnar og flytja ávarp. Þetta verður jafnframt fyrsta heimsókn hennar í Háskólann á Akureyri.

Kl. 09.00-10.30

Hópmyndataka fræðasviðanna

Kl. 11.00-12.45

Brautskráningarathöfn í hátíðarsal

  • Athöfnin sett: Kynnar eru Sigrún Vésteinsdóttir & Guðmundur Gunnarsson
  • Ræða rektors: Eyjólfur Guðmundsson
  • Tónlist: Birkir Blær
  • Brautskráning frá fræðasviðum
  • Ræða heiðursgests: Eliza Reid forsetafrú
  • Tónlist: Birkir Blær
  • Ávarp kandídats: Vigdís Diljá Óskarsdóttir
  • Heiðursverðlaun Góðvina afhent
  • Athöfn slitið

Kl. 13.00

Móttökur fræðasviða

  • heilbrigðisvísindasvið í J-húsi
  • hug- og félagsvísindasvið í O-húsi/Miðborg
  • viðskipta- og raunvísindasvið í anddyri Borga

Nýjast