Rannsókn stendur enn yfir á brunanum í húsnæði bátasmiðjunar Seigs við Goðanes á Akureyri en húsnæðið brann til kaldra kola aðfaranótt miðvikudags.
Sjá einnig: Bátasmiðja brann til kaldra kola á Akureyri
Lögreglan á Akureyri vill ekkert tjá sig um eldsupptök en telur að tjónið hlaupi á hundruðum milljóna. Enginn var inni í húsinu þegar eldurinn braust út.