26. febrúar, 2007 - 11:46
Brim fiskeldi ehf. hefur sent frá sér tilkynningu, þar sem félagið vill, að gefnu tilefni, taka það fram að samkvæmt reglugerð frá 2003, um eldi nytjastofna sjávar, er óviðkomandi bannað að stunda veiðar nær merktu eldissvæði en 200 metrar. Í þessari sömu grein kemur það einnig fram að siglingar óviðkomandi aðila nær merktu eldisvæði en 100 metra eru bannaðar. Ennfremur er bent á að brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum. Eins og fram hefur komið í Vikudegi, stendur til að kæra tvo trillukarla á Akureyri til lögreglu fyrir meintan fiskstuld úr eldiskvíum Brims norðan við Krossanes. Mennirnir voru stöðvaðir af lögreglu í smábátahöfninni í Sandgerðisbót nýlega, en áður hafði sést til þeirra við kvíarnar. Þeir voru ekki með fisk um borð þegar lögreglan hafði afskipti af þeim. Annar trillukarlanna, sem ekki vildi láta nafn síns getið, sagði í samtali við Vikudag að það væru helber ósannandi að þeir hafi verið að stela fiski úr kvíum fyrirtækisins. „Það eina sem við erum sekir um er að hafa verið að veiða of nærri kvíunum. Það hafa margir smábátasjómenn stundað veiðar nærri kvíunum en það dettur ekki nokkrun manni í hug að stela fiski úr þeim," sagði trillukarlinn.
Sævar Þór Ásgeirsson, sem hefur umsjón með eldiskerjunum fyrir hönd Brims, sagði allt eins líklegt að mennirnir hafi orðið varir við að fylgst var með þeim og hent fiskinum fyrir borð. Trillukarlinn sagði að þetta væru alveg fráleitar ásakanir og að sannleikurinn væri sagna bestur.