Ekkert sameiginlegt með Trump

Hjálmar Bogi Hafliðason
Hjálmar Bogi Hafliðason

Eins og fjallað var um á dagskrain.is fyrr í dag líkti Haukur Arnþórsson doktor í rafrænni stjórnsýslu, Hjálmari Boga Hafliðasyni kennara og varaþingmanni Framsóknarflokks við Donald Trump forsetaframbjóðanda í Bandaríkjunum.

Hjálmar Bogi segir í samtali við miðilinn vera gáttaður á ummælunum. „Pólitík Donald Trump og hans aðferðafræði er svo fjærri mínum eigin skoðunum sem frekast getur orðið, hvort sem verið er að tala um kvennfrelsi, trúarbrögð eða annað. Trump er talinn vera, og ég er svo hjartanlega sammála því – ein helsta ógn við heimsfriðinn hreinlega. Svo er verið að líkja mér við þetta,“ segir hann og viðurkennir að sér sé alls ekki skemmt.

„Af því að við lifum í svona hraðadýrkandi samfélagi þar sem fólk les jafnvel bara fyrirsagnir og dæmir svo eftir þeim þá er mér verulega brugðið,“ segir Hjálmar Bogi og bætir því við að hann hafi áður skrifað opnberlega um Donald Trump og varað við því að hann sé beinlínis hættulegur út af umræðunni sem skapast hefur í kringum hann.

„Að maður sé í alvöru í þeim sporum sem lítilsmegnugur frambjóðandi norður í landi að vera líkt við forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, Donald Trump vegna skoðana sinna á flugvellinum í Vatnsmýrinni er svo langt út úr korti,“ segir Hjálmar Bogi og tekur fram að þessi litla hugleiðing sem hann setti fram á Facebook hafi aðeins verið léttvæg athugasemd inn í umræðuna. Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni sé alls ekki kosningamál fyrir sig.

 „Mér finnst þetta persónulega ekki vera kosningamál hér, alls ekki raunar. Því það er alveg rétt að ég sem þingmaður get ekki haft bein áhrif á flugvallarmálið, en þýðir það að ég megi ekki ræða það – þessi maður sem ber mig þessum sökum, má hann þá ekki ræða kennlsu í grunnskólum af því að hann hefur engin áhrif á það hvernig hún fer fram,“ segir Hjálmar Bogi að lokum, en hann sækist eftir 2.-4. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar í haust.

Nýjast