Greiðslur úr sjúkrasjóði Einingar-Iðju á liðnu ári voru rétt tæpar 300 milljónir miðað við rúmar 266 milljónir árið áður.
Dagpeningagreiðslur og útfararstyrkir fóru í tæpar 242 milljónir miðað við rúmar 208 milljónir á árinu 2023.Þær geta verið vegna eigin veikinda, mjög alvarlega veikinda maka eða langveikra og/eða alvarlegra fatlaðra barna.
Alls fengu 2.205 styrki, að upphæð ríflega 58 milljónir sem er mjög svipuð upphæð og árið á undan. Þarna má m.a. nefna greiðslur vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar og sjúkranudds, viðtöl við sálfræðinga og geðlækna, gleraugnaglerja, heyrnartækja, krabbameinsleitar og fleira.
Alls fengu því 2.472 félagsmenn greitt á síðasta ári úr sjóðnum alls rétt tæplega 300 milljónir sem er hækkun um 34 milljónir milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Einingar-Iðju.