Janus-heilsueflingin í Þingeyjarsveit hefur farið vel af stað. Um 40–45 manns hafa skráð sig til þátttöku og aðsóknin hefur verið svo góð að tví- og þrískipta hefur þurft æfingahópunum. Gunnhildur Hinriksdóttir, verkefnastjóri æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála hjá Þingeyjarsveit og umsjónaraðili Janus-verkefnisins fyrir hönd sveitarfélagsins, segir þátttökuna hafa farið fram úr væntingum.
Janus-heilsuefling er skipulagt hreyfiverkefni fyrir íbúa 60 ára og eldri. Þingeyjarsveit ákvað í vor að taka upp verkefnið í samstarfi við Janus heilsueflingu, eftir umfjöllun í fræðslu- og velferðarnefnd. Tilgangurinn er að styðja eldri íbúa við að efla styrk og þol og koma sér upp reglulegri hreyfingu. Æft er þrisvar í viku undir leiðsögn þjálfara, bæði á Laugum og í Reykjahlíð, og þátttakendum býðst einnig heilsufarsmæling og fræðsla.
Æft er bæði á Laugum og í Reykjahlíð. Þátttakendur í Reykjahlíð koma einkum úr Mývatnssveit en á Lauga sækir fólk úr Reykjadal, Aðaldal, Kinn og Bárðardal.
„Fólk er bara ánægt að sveitarfélagið hafi komið þessu á koppinn,“ segir Gunnhildur um fyrstu viðbrögðin. Aðeins ein vika var liðin af verkefninu þegar hún svaraði fyrirspurn Vikublaðsins, en hún segir mætingu hafa verið góða. Í hópunum sé bæði fólk sem hafi stundað hreyfingu áður og byrjendur sem vilji koma sér af stað.
Að sögn Gunnhildar sækist margt fólk eftir utanumhaldi, eftirfylgni og leiðsögn í tækjasalnum. Verkefnið stendur yfir í tvö ár og markmiðið er að þátttakendur nái smám saman að gera hreyfingu að reglulegum hluta af lífinu.
Þótt fyrstu æfingarnar séu þegar hafnar er enn hægt að bætast í hópinn. Gunnhildur segir áhugasama geta haft samband og byrjað hvenær sem er á verkefnistímanum.