Fyrirtækið Vesturkantur ehf. hefur óskað eftir breytingu á deiliskipulagi Hvannavalla 10-12 og 14 sem snýr að lóð Hvannavalla 10. Þar var fyrirhugað að byggja fjölbýlishús. Á lóðinni er nú hús sem áður fyrr hýsi starfsemi Hjálpræðishersins.
Breyting nú felur í sér að fallið verður frá niðurrifi hússins og að það haldi sér í óbreyttri mynd ásamt því að bílastæði til útleigu verði útfærð á baklóð hússins.
Skipulagsráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi í liðinni viku en það verður tekið fyrir á ný síðar. Jafnframt var skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjenda.

Hvannavellir 10 húsið var byggt árið 1960
Vilja sjá aukna íbúðabyggingu
„Við vildum við eiga samtal við nýjan lóðarhafa og fá betri innsýn í framtíðaráform hans fyrir lóðina. Í gildandi skipulagi er gert ráð fyrir íbúðauppbyggingu á svæðinu og það er jafnframt vilji skipulagsráðs að sjá aukna íbúðauppbyggingu á Oddeyri á komandi árum,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir formaður skipulagsráðs. Hún bætti við að ekkert hefði þó verið ákveðið enn með afgreiðslu málsins.
Lóðin er í nú skipulögð fyrir íbúðarhúsnæði á 4 hæðum og leyfi til niðurrifs á núverandi húsi. Skipulagsbreytingin miðar að því að breyta lóðinni aftur í verslunar- og þjónustulóð eins og gildandi aðalskipulag segir til um og að núverandi hús standi áfram og á því verði gerðar endurbætur og breytingar.