Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðsiflokksins Mynd Vbl
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir stuðning við tillögu um fasta starfsstöð björgunarþyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri fara vaxandi. Hann greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni,
,,Í gær 3. október 2026 var tillaga mín til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri útbýtt sem þingskjali á Alþingi. Tillagan er nú lögð fram í fimmta sinn og málið hefur þróast og styrkst með hverju árinu sem líður. Fleiri þingmenn hafa bæst í hóp þeirra sem styðja málið og skilningur á mikilvægi þess hefur aukist í samfélaginu.
Tillagan felur í sér að dómsmálaráðherra verði falið að beita sér fyrir því, í samstarfi við hagaðila á Akureyri, að nauðsynleg aðstaða verði byggð upp á Akureyrarflugvelli og björgunarþyrla staðsett þar til frambúðar.
Því miður virðist hafa orðið mistök við uppsetningu þingskjalsins, kippum því í lag í vikunni. Flutningsmenn tillögunnar eru mun fleiri en þeir fjórir sem þar eru nefndir. Eftirfarandi þingmenn hafa einnig lýst yfir vilja til að vera meðflutningsmenn málsins en nöfn þeirra koma ekki fram á þingskjalinu:
Guðrún Hafsteinsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Þorgrímur Sigmundsson, Ingibjörg Isaksen, Ingvar Þóroddsson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Sigurjón Þórðarson, Stefán Vagn Stefánsson og Ingibjörg Davíðsdóttir.
Þannig að fjöldi þingmanna á málinu ásamt mér eru tólf talsins.
Þessi víðtæki stuðningur þingmanna úr ólíkum stjórnmálaflokkum sýnir að hér er ekki um staðbundið hagsmunamál að ræða. Föst starfsstöð á Akureyri myndi stytta viðbragðstíma á Norður- og Austurlandi, yfir hálendinu og á hafsvæðinu norðan og austan Íslands. Hún myndi efla sjúkraflug, leit og björgun, almannavarnir og þjóðaröryggi.
Fjármögnun verkefnisins gæti fallið undir markmið Íslands um að verja 1,5% af landsframleiðslu til öryggistengdra innviða og viðnámsþróttar.
Starfsstöðin myndi styrkja samstarf Íslands við vina- og bandalagsþjóðir innan NATO, meðal annars við æfingar og sameiginleg viðbrögð á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum.
Þetta snýst um jafnræði landsmanna, öryggi sjófarenda og skynsamlega áhættudreifingu.
Nú þarf Alþingi að fylgja þessum vaxandi stuðningi eftir og tryggja að föst starfsstöð björgunarþyrlu á Akureyri verði að veruleika."
Þingsályktunina má lesa með þvi að smella á slóðin hér fyrir neðan.