Lokaorðið - Gamla góða Ísland

Heiðrún E. Jónsdóttir átti Lokaorðið s.l. fimmtudag.
Heiðrún E. Jónsdóttir átti Lokaorðið s.l. fimmtudag.

Fyrir síðari heimsstyrjöld var Ísland eitt fátækasta ríki Evrópu. Fólk bjó við allt aðrar aðstæður og kjör en við þekkjum í dag. Í dag er Ísland meðal ríkustu þjóða heims. Í alþjóðlegum samanburði þegar hagsæld og almenn lífsgæði þjóða eru borin saman er Ísland iðulega í efstu sætum, ásamt hinum Norrænu ríkjunum. Þetta eru samfélög sem þekkt eru fyrir mikil lífsgæði, jafnrétti, hagsæld og öflugt velferðarkerfi.

Árangur eldri kynslóða

Við erum ekki bara heppin. Árangur okkar byggist á þrotlausri vinnu okkar og eldri kynslóða. Við höfum verðmætar náttúruauðlindir, góða innviði, öflugt velferðarkerfi og vel menntaða þjóð. Atvinnulífið hefur þróast og er ekki jafn einhæft og viðkvæmt og áður, verðmætasköpun er mikil.

Auðvitað er ekki allt fullkomið

Það er alltaf eitthvað sem betur má fara. En í samanburði við flest ríki þá eru verkefni okkar ekki óyfirstíganleg. Við höfum öll tól og tæki til að takast á við þau. Og við höfum seigluna sem hefur haldið lífi í okkar í gegnum aldirnar.

Það skiptir máli hvernig við tölum um samfélag okkar

Sérstaklega skiptir það máli gagnvart unga fólkinu okkar. Ef stöðugt er talað eins og hér sé allt verra en annars staðar og að framtíðin sé dökk, þá er eðlilegt að það hafi áhrif á þau.

Sjálfsvirðing og stolt en gleymum ekki auðmýkt

Við og fyrri kynslóðir höfum staðið okkur býsna vel, án þess þó að halda því fram að Ísland sé best í heimi. Við getum bent á það sem betur má fara en um leið borið virðingu fyrir því sem hefur verið vel gert. Það er sá heiðarleiki og sú sjálfsvirðing sem við þurfum að rækta.

Það er skylda okkar að standa vörð um þann árangur og bæta hann enn frekar

Árangur okkar kom ekki af engu. Á sumum tímum þurfti jafnvel blóð, svita og tár. Í það minnsta vinnusemi, seiglu, útsjónarsemi og framsýni. Höfum trú á og byggjum á því góða samfélagi sem fyrri kynslóðir skildu eftir. Það er skylda okkar að skila því til næstu kynslóðar, enn betur en við tókum við því.

Kveðja, Heiðrún.

Nýjast