Eins og fram kom í síðasta tölublaði Skarps náðist samkomulag á milli fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og óháðra og Samfylkingar og annars félagshyggjufólks um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Norðurþings kjörtímabilið 2018-2022.
Kristján Þór Magnússon, sem ráðinn var sveitarstjóri Norðurþings af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna í upphafi síðasta kjörtímabils mun sitja áfram; nú sem kjörinn fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Skarpur heyrði í Kristjáni í vikunni en hann var alsæll með niðurstöðu kosninganna og það skýra umboð sem hann fær persónulega; Sjálfstæðisflokkur hlaut 30,1 prósent atkvæða og þrjá menn kjörna. „Ég er himinnsæll og þakklátur. Ég fann fyrir ákveðnum meðbyr fyrir kosningar en þetta fór fram úr mínum björtustu væntingum hvað okkar framboð varðar. Ég veit að ég var áberandi en þetta var ótrúlega flottur hópur á listanum hjá okkur, við náðum vel saman í kosningabaráttunni og ég er mjög ánægður með okkur,” útskýrir Kristján.
Kristján segir að það geti orðið önnur áferð á stöðu hans sem sveitarstjóra að einhverju leyti í ljósi þess að nú sé hann pólitískt kjörinn. „Ég hugsa að maður geti verið meira afgerandi, eðlilega í sinni afstöðu á sveitarstjórnarfundum og fylgt sinni sannfæringu. Að öðru leyti held ég áfram að sinna mínum störfum eins og ég hef gert af, heilindum og gleði. Ég kvíði því ekki að takast á við þetta,” segir hann.
Samkvæmt Kristjáni gengu meirihlutaviðræður flokkanna vel, það hafi þurft að ná saman um ákveðin atriði en að þetta hafi tekið sinn eðlilega tíma. „Ég er mjög ánægður með hvernig til tókst og þessi málefnasamningur er mjög flottur. Þar er fókus á fjölskylduna og innspýtingu í því sem snýr að nærumhverfinu í byggðakjörnunum. En það verður auðvitað áfram eins og hefur verið í gegnum tíðina alltaf barningur að halda rekstrinum réttu megin við núllið,“ segir hann.
Viðtalið má lesa í heild sinni í prentútgáfu Skarps sem kom út í gær.