Dæmd í 8 mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur

Héraðsdómur Norðurlands eystra á Akureyri.
Héraðsdómur Norðurlands eystra á Akureyri.

Kona á fertugsaldri var fyrir helgi dæmd í átta mánaða fangelsi í héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa í þrígang ekið ekið bifreið án ökuréttinda; þar af tvíveigis undir áhrifum áfengis. Þá var konan einnig ákærð fyrir þjófnað með því að hafa í júlí 2016, brotist inn í gistiheimili  í Hörgársveit og stolið þaðan sjónvarpstæki, DVD spilara, myndlykli, beini (router), íþróttatösku og sæng. Til vara, fyrir hylmingu með því að hafa, nokkrum dögum síðar verið með í vörslum sínum, í bifreið sem hún var stöðvuð á með umrætt þýfi.

Fyrir dómi neitaði hún sök um þjófnað en játaði hylmingu. Ákæruvaldið féll frá kröfu um að konan yrði dæmd fyrir þjófnað en hún var fundin sek um hylmingu.

Í dómi héraðsdóms kemur fram að konan hafi brotið skilorð en hún hefur frá árinu 2006 ítrekað verið dæmd fyrir ölvunarakstur og nytjastuld. Hún var einnig dæmd í tveggja mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir í mars á þessu ári en þeim dómi hefur verið áfrýjað.

Refs­ing konunnar er nú ákveðin sem hegn­ing­ar­auki við dóm­inn frá í mars. Þá þótti dómara óhjákvæmilegt að árétta að kon­an sé áfram svipt öku­rétti ævi­langt. Konan var dæmd til að greiða 77 þúsund krón­ur í sak­ar­kostnað og mál­svarn­ar­laun verj­anda síns.

Nýjast