Eftirvinna í Vaðlaheiðargöngum er nú í fullum gangi. Í síðustu viku var sprautað 550 metra af steypu í lokastyrkingum og er því búnir um 3.621 m langur kafli eða um 50% af göngunum. Búið er að hreinsa lagnaskurð á um 1000 metrum og fer lagnavinna að hefjast fljótlega, er fram kemur á Facebooksíðu gangnanna.
„Vegagerð stendur yfir í Fnjóskadal og er umferð nú um hjáleiðir og eru vegfarendur beðnir að virða vegavinnumerkingar og hraðatakmarkanir. Stefnt er að klæða og taka í notkun nýjan veg í haust.Vegskálabygging í Fnjóskadal heldur áfram og lokið er um 30%, eða 55 metrar af 188 metrum,“ segir ennfremur.