Björgunarsveit kölluð út vegna strands við Húsavík

Mynd: Björgunarsveitin Garðar/Facebook.
Mynd: Björgunarsveitin Garðar/Facebook.

Í tilkynningu frá Björgunarsveitinni  Garðari rétt í þessu kemur fram að sveitin hafi verið  kölluð út þegar bátur strandaði á skeri rétt utan við Húsavík. Fjórir félagar úr sveitinni fóru á björgunarbátnum Villa Páls á vettvang þar sem þrír voru um borð í bátnum sem strandaði. Vel gekk að koma bátnum á flot á ný og gat hann siglt fyrir eigin vélarafli til heimahafnar. Betur fór en á horfðist og engin slys urðu á fólki.

Nýjast