Snæbjörn Ragnarsson, fyrrum Evróvisjónbakraddadansari, vonarstjarna Íslands í frjálsum íþróttum, eitt sinn handlangari byggingafyrirtækisins Norðurvíkur, núverandi meðlimur hljómsveitanna Innvortis, Skálmaldar, Ljótu hálfvitanna, Melrakkanna og fleiri banda, leikritahöfundur og alhliða snillingur, sat eitt sinn fyrir svörum í fréttablaði á heimaslóðum á Húsavík og var m.a. spurður um frambærilegustu stjórnmálamenn landsins að hans mati. Og svaraði að venju tæpitungulaust:
„Sennilega er Steingrímur Joð eini stjórnmálamaðurinn sem ég ber virðingu fyrir, en ég er næstum alltaf ósammála honum. Viðurkenni svo sem að ég fylgist ekkert allt of vel með stjórnmálum, en þetta virðast allt vera hlandfötur og eiginhagsmunaseggir.“
Bibbi var einnig spurður um uppáhalds lit sinn og þar stóð ekki heldur á svari, nefnilega: „Gunnahvítur.“
Þetta síðasta skilja aðeins Þingeyingar. JS