Í umferðarslysi í gærdag á Eyjarfjarðarbraut vestari skammt sunnan við Hrafnagil lést drengur á þrettánda aldursári en hann var ökumaður lítils bifhjóls sem lenti í árekstri við jeppabifreið. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.
Rannsókn lögreglu á Norðurlandi eystra og Rannsóknarnefndar samgönguslysa stendur yfir á tildrögum slyssins og því ekki hægt að veita frekari upplýsingar á þessu stigi. Þetta kemur fram á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðulandi eystra.