Bæta á umferðaröryggi á tíu stöð um á Hringvegi 1 í gegnum Akureyri. Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrar fyrir hönd Akureyrarbæjar og
Vegagerðarinnar hefur óskað eftir tilboðum í endurbætur á götum og umferðarstýringum á Glerárgötu við gatnamót Gránufélagsgötu, Þórunnarstrætis og Tryggvabrautar og á Hörgárbraut við gatnamót Undirhlíðar og Stórholts, ásamt gönguþverun norðan Glerár.
Aðaláherslan er að bæta gönguleiðir og öryggissvæði gatnamóta ásamt uppsetningu og breytinga á umferðarljósum. Engar af þessum úrbótum
ganga út á þrengingu Glerárgötunnar.
Við gatnamót Glerárgötu og Þórunnarstrætis verður t.a.m. útakstur úr verslunargötunni breyttur og ný umferðareyja á Þórunnarstrætið.
Við gatnamót Glerárgötu og Tryggvabrautar verður m.a. umferðarljós á öllum miðeyjum og útkeyrsla úr verslunargötu færð til suðurs.
Verkin verða boðin út í desember og stefnt er á að þeim verði lokið fyrir háannatíma umferðar næsta sumars árið 2018.