5 ára deild fyrir leikskólabörn í Glerárskóla

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Bæjarráð Akureyrar samþykkti í dag aukafjárveitingu vegna 5 ára leikskóladeildar í grunnskólum bæjarins. Bæjarstjórn Akureyrar bókaði á fundi sínum þann 27. apríl sl. að kannaðir yrðu möguleikar þess að nýta hluta húsnæðis í grunnskólum fyrir 5 ára deildir leikskólabarna. Eins og Vikudagur hefur fjallað um undanfarið eru mörg börn sem fá ekki pláss á leikskólum bæjarins og þá er löng bið hjá dagforeldrum.

Á fundi bæjarráðs kom fram að kostnaður við þessa framkvæmd að teknu tilliti til tekna er rúmar 33 milljónir á árs grundvelli. En vegna ársins 2017 er áætlaður kostnaður rúmar 16 milljónir króna.

Fræðslusvið hefur undanfarið unnið að tillögu og útfærslu á að reka leikskóladeildir fyrir 5 ára börn í tveimur grunnskólum á Akureyri en ekki liggur fyrir hvaða annar skóli mun bjóða upp á slíka  deild. 

 

Nýjast