Fundað var í gær vegna Bíladaga á Akureyri sem fara fram um helgina og lýkur formlega með bílasýningu á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Voru það fulltrúar frá Aflinu, Akureyrarstofu, Bílaklúbbi Akureyrar, Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar, lögreglu og tjaldsvæðunum á Hömrum og Hrafnagili sem sátu fundinn.
Mikil áhersla verður lögð á að allir virði siðareglur Bíladaga og tekið verði hart á þeim brotum sem kunna að koma upp, líkt og gert hefur verið síðustu sumur. Þá gildir einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA, segir á vef Akureyrarbæjar. Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, verða sýnileg á stærstu viðburðum og lögreglan fylgist vel með því að allt fari vel fram.
Lögreglumenn á vakt verða á bæði merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar koma upp hraðahindrunum víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og óvarlegan akstur.
Siðareglur Bíladaga: