Hið fagra og sérstaka hús Árholt á Húsavík, sem stendur í ekki síður fögru umhverfi á bakka Búðarár við fossinn, er 125 ára í dag, 8. september. Þar hefur sem sé búið fólk samfellt í eina öld og fjórðungi betur. Og raunar allan þennan tíma sama ættin, fólk úr sömu fjölskyldu og þar býr nú heiðurskonan Hulda Þórhallsdóttir í hárri elli, en frísk og ern og fylgist vel með, m.a. á netinu.
Saga Árholts og þeirra sem þar hafa búið er í stuttu máli þessi:
Sigtryggur Sigtryggsson f. 1852 og Anna Vigúsdóttir kona hans f. 1851 byggðu Árholt á árunum 1889-1891 og flytja inn í húsið 8. september 1891. Jakobína Sigtryggsdóttir, dóttir Sigtryggs og maður hennar Klemens Klemensson, kaupa Árholt 1911, þau byggja við stofu og herbergi. 1. október 1942 kaupir Þórhallur Sigtryggson Árholt af systur sinni. Hulda Þórhallsdóttir dóttir Þórhalls og maður hennar Jónas Egilsson flytja í Árholt 6. nóvember 1943 og kaupa það svo 15. október 1954. Og eftir andlát Jónasar hefur Hulda búið ein í Árholti. Þannig hafa niðjar frumbyggjanna búið í húsinu frá upphafi og er svo enn.
Í fyrsta bindi sögu Húsavíkur segir um Árholt m.a.: “Árholt er ef til vill rómantískasta hús á Húsavík.”
Nánar er fjallað um þetta merka hús í Skarpi sem kom út í dag. JS