Sjúkrabíll og lögregla voru kölluð út þegar tveir bílar rákust saman við Tjörn í Aðaldal í morgun.
Fjórir farþegar voru í öðrum bílnum og ökumaður í hinum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var ökumaður annars bílsins fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á slysadeild á Akureyri. Lögregla kannar nú tildrög slyssins.