Að undanförnu hafa engir Húsvíkingar í heiminum verið jafn umtalaðir og afmyndaðir og mandarínandarsteggirnir sem hafa stungið niður fæti þar í bæ og glatt augu og linsur bæjarbúa og gesta. Myndir hafa birst af þeim í helstu fjölmiðlum landsins, Mogga og Skarpi til að mynda. Fuglaljósmyndarar hafa þyrpst í Skrúgarðinn við Búðará til að mynda þessa litfögru fugla og flatmagað eftir bökkum árinnar til að ná sem skástum skotum. Steggirnir hafa verið myndaðir í görðum og á götum og myndunum dreift á alnetið og vakið athygli og ánægju langt umfram myndir af öðrum fögrum íbúum bæjarins.
Og menn hafa náð ansi góðum myndum. Eins og hér sést á mynd Harðar í Árholti. JS