Akureyringum fjölgar um 300 á milli ára

Mynd/Ármann Hinrik
Mynd/Ármann Hinrik

Íbúum á Akureyri fjölgaði um tæplega 300 á milli ára samkvæmt talningu hjá íbúaskrá. Þann 1. janúar sl. voru íbúar bæjarins 18.786 en voru 18.488 á sama tíma í fyrra. Þetta er mesta fjölgun síðan milli áranna 2004-2005 er íbúum fjölgaði einnig um 300. Frá árinu 2014 hefur bæjarbúum fjölgað um tæplega 700.

Íbúafjölgun á Akureyri hefur tekið kipp eftir frekar hæga fjölgun undanfarin ár. Sem dæmi fjölgaði bæjarbúum aðeins um 88 milli áranna 2014-2015. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri segir í samtali við Vikudag að þetta sé mjög ánægjulega þróun.

„Við fögnum allri fjölgun íbúa. Það er samt mikilvægt að íbúafjölgunin sé sem jöfnust og gefi okkur tækifæri til að aðlaga innviðina að henni. Mikil fjölgun íbúa, sérstaklega þeirra yngri getur kallað á tímabundnar þrengingar, t.d. í þjónustu við leikskólabörn. En það er ánægjulegt verkefni sem kallar á þolinmæði allra sem að koma,“ segir Eiríkur.

Hann segir erfitt að skýra þessu mikla fjölgun umfram þá sem hefur verið undanfarin ár. „En ég vil þakka það stöðugleika og góðu atvinnuástandi, öruggu samfélagi og sterkum innviðum.“

 

Nýjast