Akureyrarbær kaupir fjarstýrða hallasláttuvél

Sláttur á hljóðmön við Dalsbraut. Mynd/akureyri.is
Sláttur á hljóðmön við Dalsbraut. Mynd/akureyri.is

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar auglýsti útboð á fjarstýrðum hallaslátturvélum fyrir Umhverfismiðstöðina í mars síðastliðnum. Tilboðum var skilað inn þann 10. apríl og bárust þrjú tilboð frá tveimur aðilum. Ákveðið var að semja við lægstbjóðanda, Vetrarsól ehf, um kaup á sláttuvél að gerðinni Energreen Robo eco. Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.

„Núna í vikunni tók Umhverfismiðstöð Akureyrarbæjar sláttuvélina í notkun. Tækið er kærkomin viðbót við sláttutæki Umhverfismiðstöðvar þar sem þeim svæðum sem erfitt og tímafrekt er að slá hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum,“ segir í tilkynningunni.

Sláttuvélin áorkar miklu á stuttum tíma og slær mun betur en vélorf í halla, eins og t.d. á hljóðmönum.

 

Nýjast