Æskuverk norðlenskra listamanna

Laugardaginn 10. mars klukkan 14:30 verður opnuð á vegum Gilfélagsins sýningin Bernskubrek í Deiglunni. Þar munu allt að 30 norðlenskir listamenn sýna bernskubrek sín. Það er, listaverk unnin á æskuárum þeirra. Á sýningunni verður hægt að sjá hvort krókurinn hafi snemma beygst í höndum listamannanna. Hvort ungdómsstefin hafi fylgt þeim fram eftir árum eða hvers konar uppgjör og byltingar hafi orðið frá árdögum sköpunar þeirra. Meðal þeirra sem sýna eru:

Arna Valsdóttir

Jónas Viðar

Óli G.

Þórarinn Blöndal

Hlynur Hallsson

Margrét Jónsdóttir

Hanna Hlíf Bjarnadóttir

Anna Gunnarsdóttir

Karen Dúa Kristjánsdóttir

Bryndís Kondrup

Bryndís Arnardóttir

Ragnheiður Þórisdóttir

Jónborg Sigurðardóttir

Aðalsteinn Vestmann

Dögg Stefánsdóttir

Dagrún Matthíasdóttir

Hallgrímur Ingólfsson

Anna María Guðmann

...og margir fleiri

Þess má geta að ótal sýningar fara aðrar fram þennan dag. Hlynur og Karen Dúa opna bæði sýningar, Hlynur í Boxinu og Karen Dúa á Karólínu. Í Jónas Viðar gallerí verður opnuð sýning á málverkum Guðmundar Ármanns og í Listasafninu verður sýningin "augliti til auglits" opnuð. Í Ketilhúsinu verður opnuð handverkssýningin "Trans Forum". Það verður því sannkölluð myndlistarhátíð í Listagilinu laugardaginn 10. mars, segir í frétt frá Gilfélaginu.

Nýjast