Aðstoða hátt í 100 fjölskyldur með mat yfir jólin

Margir eru í neyð um jólin. Mynd úr safni.
Margir eru í neyð um jólin. Mynd úr safni.

Þær Sigrún Steinarsdóttir og Sunna Jakobsdóttir stofnuðu hópinn „Matargjafir á Akureyri og nágrenni“ á Facebook fyrir nokkrum árum til að aðstoða þá sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin. Alls eru 1.564 skráðir í hópinn í dag og fer þeim fjölgandi.

Sigrún segir í samtali við Vikudag að það stefni í að sami fjöldi leiti sér aðstoðar í ár og í fyrra, eða hátt í hundrað fjölskyldur. „Fyrir jólin í fyrra aðstoðum við 92 fjölskyldur og það lítur út fyrir að það verði svipað upp á teningnum í ár,“ segir Sigrún.

Hún segir stærstan hóp þeirra sem leita eftir aðstoð vera unga og/eða einstæða foreldra. Á Facebooksíðu hópsins eru þeir sem eru aflögufærir, hvort sem það eru fólk eða fyrirtæki beðnir um að veita aðstoð.

„Það hefur ekki gengið nægilega vel að fá fólk til að gefa hingað til en við vonum að það taki við sér,“ segir Sigrún.

Hægt er að leggja inn á matargjafir á reikningsnúmerið 1187-05-250899 kt. 670117-0300, kaupa bónuskort eða koma með mat.

Nýjast