Bæjarstjórn Akureyrar hefur ákveðið að verja á hverju ári næstu þrjú árin 20 milljónum króna í að styðja við nútímavæðingu í leik- og grunnskólum bæjarins, eða samtals 60 milljónum króna. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar. Ákvörðun þess efnis var kynnt á kynningarfundi um fjárhagsáætlun bæjarins í lok nóvember.
Vikudagur greindi frá því í fyrravetur að til stæði að leggja áherslu á tæknivæðingu grunnskóla bæjarins. Sagði Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri á Akureyri, í samtali við blaðið að nútímavæðing væri mikilvægur þáttur í þróun skólastarfsins, sem stöðugt krefst aukinnar tæknivæðingar með auknu sjálfstæði nemenda í námi sínu. Einnig væri þetta liður í að draga úr kostnaði í skólakerfinu.