04. desember, 2007 - 14:42
Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í dag styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Að þessu sinni hlutu 26 einstaklingar og félagasamtök styrki úr sjóðnum, samtals að upphæð 4,4 milljónir króna. Sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni hlutu hæsta styrkinn, kr. 1.750.000.-, til að reisa nýja svefnskála við sumarbúðirnar að Hólavatni. Auglýst var eftir styrkumsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð KEA 24. október, umsóknarfrestur var til 6. nóvember sl. og bárust alls 102 umsóknir. Að þessu sinni var auglýst eftir styrkumsóknum í tveimur flokkum samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins, þ.e. í flokki almennra styrkja og í flokki þátttökuverkefna. Flokkur almennra styrkja. Hver styrkur kr. 100.000. Eftirtaldir fengu úthlutun:
- Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands, vegna sex samstarfsverkefna með ýmsum aðilum.
- Magnús Aðalbjörnsson, vegna ritunar sögu Gagnfræðaskólans á Akureyri.
- Bílaklúbbur Akureyrar, til að gera upp elsta vörubíl á Eyjafjarðarsvæðinu.
- Kammerkór Norðurlands, til að halda tónleika og hljóðrita núverandi söngskrá.
- Guðmundur Ingi Jónatansson, til þess að vinna ljósmyndafilmur á rafrænt form, myndir frá Dalvík og nágrenni.
- Menningar- og listasmiðjan á Húsabakka, til að starfrækja Menningar- og listasmiðju á Húsabakka.
- Kvennakór Akureyrar, til að gefa út geisladisk og fara í tónleikaferð.
- Félag eldri borgara í Dalvíkurbyggð og Hrísey, til að halda kóramót í apríl 2008.
- Karlakór Siglufjarðar, vegna tónleikahalds og þátttöku í kóramótum.
- Íþróttafélagið Þór á Akureyri, til öflunar gagna um sögu Þórs í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.
- Herhúsfélagið, til reksturs hússins, þar sem listamönnum er boðin vinnuaðstaða og gisting.
- Skákfélagið Goðinn, til kaupa á útbúnaði til skákiðkunar.
- Birna Björnsdóttir, vegna námskeiða fyrir börn og unglinga í listsköpun.
- Í fínu formi, Kór félags eldri borgara á Akureyri, til reksturs kórsins.
- Roar Kvam, til tónleikahalds með Kvennakórnum Emblu.
- GalleriBOX, til að halda ýmsar sýningar og uppákomur.
- Hólmgeir Sigurgeirsson, vegna heimildamyndar um sögustaði í Eyjafirði.
- George Hollanders, til að setja upp sýningu úti á víðavangi víðs vegar um Eyjafjarðarsveit.
- Þórarinn Stefánsson, til að gefa út geisladisk, útsetningar fyrir píanó á íslenskum þjóðlögum.
- Guðmundur Þ. Júlíusson og Árni Geir Helgason, til að endurgera og breyta gömlum eikarbáti sem smíðaður var í Slippstöðinni 1971.
- Snow Magic "Mývatn - töfraland jólanna", jólasveinaverkefni í Mývatnssveit.
- Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, til reksturs starfseminnar.
Eftirtaldir fengu styrk í flokki þátttökuverkefna:
- Kammerkórinn Hymnodia, vegna tónleikahalds í Akureyrarkirkju 1. desember sl. þar sem minnst var 300 ára ártíðar þýska tónskáldsins Dietrich Buxtehudes - kr. 150.000.
- Þórir Ó. Tryggvason, til að koma filmum yfir á stafrænt form - kr. 150.000.
- Snæuglan ehf., áður Fuglasafn Sigurgeirs, til að skrá safnmuni - kr. 150.000.
- Sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni, til að reisa nýja svefnskála við sumarbúðirnar að Hólavatni - kr. 1.750.000.