11.desember - 18.desember - Tbl 50
Íbúum Akureyrar fjölgaði um nærri tvöhundruð á níu mánuðum
20,383 íbúar voru skráðir með lögheimili á Akureyri um síðustu mánaðamót, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Miðað við 1. desember á síðasta ári hefur íbúum bæjarins fjölgað um 183, sem er 0,9 prósenta fjölgun en landsmeðaltalið á þessu tímabili er 1,7 prósent.
Samkvæmt sömu gögnum hefur íbúum Norðurþings fjölgað um 49 á umræddu tímabili, sem er 1,5 prósenta fjölgum. Íbúar Norðurþings voru um síðustu mánaðamót 3,249.
Hlutfallsleg aukning er mest í Hörgársveit, eða 6,7 prósent. Þar eru íbúar nú 866 og hefur fjölgað um 54 á níu mánaða tímabilinu.
Sömuleiðis hefur íbúum Þingeyjarsveitar fjölgað umtalsvert, eða um sex af hundraði. Íbúar þar voru um síðustu mánaðamót 1,566 en voru þann 1. desember 1,477.