Gusgus mætir aftur í Hof að ári

Mynd: MAk/Facebook
Mynd: MAk/Facebook
Gusgus mun halda tónleika í Menningarhúsinu Hofi 26. október 2024! 
 

Þá verður tímamótaverkið Arabian Horse flutt í heild sinni ásamt öðrum helstu tónverkum sveitarinnar.

Arabian Horse er partíplata með djúpa sál og minningin lifir af tónleikum sem og af dansgólfi. Í október 2024 fáum við loks aftur að upplifa plötuna flutta á sviði. Þar fáum við að njóta plötunnar í heild sinni, leyfa taktinum að taka okkur og upplifa litbrigði tilfinninga sem streyma í gegnum þetta meistaraverk.

GusGus er þekkt fyrir að leggja allt í sölurnar í enda fáar hljómsveitir sem eru jafn þéttar á tónleikum. 

 


Athugasemdir

Nýjast