Frístundastyrkur fyrir eldri borgara

Á þessu ári nemur fullur styrkur 60.000 krónum en hálfur styrkur 30.000 krónum
Á þessu ári nemur fullur styrkur 60.000 krónum en hálfur styrkur 30.000 krónum

Akureyrarbær hefur ákveðið að innleiða nýjan tekjutengdan frístundastyrk fyrir eldri borgara með það að markmiði að efla þátttöku þeirra í uppbyggilegu frístundastarfi og draga úr félagslegri einangrun, en frá þessu segir á heimasíðu Akureyrar.

Styrkurinn er ætlaður tekjulægri einstaklingum 67 ára og eldri sem eiga lögheimili í Akureyrarbæ.

Frístundastyrkinn má nýta til að greiða fyrir námskeið, æfingar eða aðgang að skipulögðu frístundastarfi. Ekki er heimilt að nota styrkinn til kaupa á búnaði, vörum, gjafabréfum eða annarri þjónustu.

Á árinu 2026 nemur fullur styrkur 60.000 krónum en hálfur styrkur 30.000 krónum. Nánar hér.

 

Nýjast