Maður velur sér vini en ekki ættingja, sagði einhver, einhvern tímann, einhversstaðar. Það er margt til í því. Nú hef ég aldrei haft í hyggju að skipta út mínum ættingjum, þeir eru upp til hópa vandað fólk og flestir auk þess reglulega skemmtilegir. Ég á einnig marga góða og skemmtilega vini. Ég hef sankað þeim að mér á lífsins göngu.
„Þetta var dásamleg ferð í alla staði og gaf þeirri í fyrra ekki neitt eftir,“ segir Sigfús Ólafur Helgason einn af skipuleggjendum ferðar tæplega 40 eldri sjómanna til hafnarborganna Bremenhaven og Cuxhaven í Þýsklandi. Í fyrravetur heimsótti hópur sjómanna frá Akureyri hafnarborgirnar Hull og Grimsby í Bretlandi og var góður rómur gerður að. Næsta verður haldið til Færeyja í maí næstkomandi og verða þátttakendur um 40 talsins. Þá er þegar farið að leggja drög að ferð sjómanna til Aberdeen í Skotlandi.
Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð. Með endurnýjuninni er staðfest að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur.
Tillaga um breytingu á lóðinni við Hrísalund 3 á Akureyri fékk jákvæðar undirtektir hjá skipulagsráði bæjarins. Erindi kom frá arkitektastofunni Kollgátu sem sótti um að breyting yrði gerð á aðalskipulagi fyrri svæðið sem nær til lóðarinnar númer 3 við Hrísalund, þannig að heimilt yrði að byggja blandaða byggð með verslun -og þjónustu á jarðhæð og íbúðir á efri hæðum. Jafnframt var sótt um leyfi til að hefja gerð nýs deiliskipulags.
Umhverfisráð Háskólans á Akureyri býður til sjöttu Sjálfbærniráðstefnunnar miðvikudaginn 10. apríl. Ráðstefnan er opin öllum, þátttaka er gjaldfrjáls og er hægt að taka þátt á staðnum eða í streymi. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, setur ráðstefnuna. Að lokinni setningu heldur Jukka Heinonen frá Háskóla Íslands lykilerindi sem ber yfirheitið, „Affluence and the climate-sustainability illusion in the Nordics“. Í kjölfarið tekur við metnaðarfull dagskrá sem hægt er að nálgast í viðburðadagatali á vefsíðu háskólans, unak.is. með því að smella hér. (6. Sjálfbærniráðstefnan | Háskólinn á Akureyri )
Geðrækt er um þessar mundir að flytja starfsemi sína að Glerárgátu 24, 4. hæð í húsnæði sem Styrktar og líknarsjóður, Oddfellow festi kaup á í þeim tilgangi að skapa félagasamtökum Grófin eins og Grófinni betri rekstrargrundvöll. Grófin hefur verið í nokkrum húsnæðisvanda, m.a. vegna heilsuspillandi aðstæðna á fyrri starfsstöðvum og leigukostnaður var einnig of hár fyrir félagið. Oddfellow á Akureyri fékk spurnir af þeirri stöðu og komu Grófinni til aðstoðar.
Í gær, skírdag, undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, endurnýjaðan menningarsamning milli Akureyrarbæjar og ríkisins.