Æfingar hafnar á Benedikt Búálfi

Glatt var á hjalla á fyrsta samlestri á fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf.
Glatt var á hjalla á fyrsta samlestri á fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf.

Fyrsti samlestur á fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf fór fram í byrjuyn vikunnar en leikhópurinn, ásamt listrænum stjórnendum, hittist í fyrsta skiptið í Samkomuhúsinu á mánudaginn var. Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, setur á svið hinn ævintýralega og vinsæla fjölskyldusöngleik Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson í mars.

Söngleikurinn, sem var frumsýndur árið 2002, er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri, er segir í tilkynningu frá MAk. Benedikt búálfur er byggður á samnefndum bókum eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og fjallar um vinina Benedikt búálf og Dídí mannabarn og ferðalag þeirra um Álfheima. Tóta tannálfi hefur verið rænt og allur Álfheimur er í hættu. Vinirnir leggja af stað og á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum og ásamt dreka, blómálfum og alls konar furðuverum hjálpast þau að við að bjarga Álfheimum.

Með hlutverk Benedikts fer Árni Beinteinn Árnason en aðrir leikarar eru Björgvin Franz Gíslason, Valgerður Guðnadóttir, Króli, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson og Birna Pétursdóttir.


Athugasemdir

Nýjast