Ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum: Tengsl borgaralegra og hernaðarlegra þátta

TF-Eir
TF-Eir

Varðberg, Norðurslóðanetið, Landhelgisgæsla Íslands, dómsmálaráðuneytið og Háskólinn á Akureyri standa fyrir opinu málþingi í dag  milli kl 13 til 17 þar sem sjónum verður beint að leit og björgun á norðurslóðum.

  • Málþingið fer fram í stofu M101 í Háskólanum á Akureyri
  • Beint streymi verður frá málþinginu á vef Vikublaðsins og geta áhugasöm  fylgst með streymi hér

Leit og björgun á norðurslóðum er í hraðri þróun vegna aukinnar umferðar, breytts öryggisumhverfis og nýrrar tækni. Á þessu málþingi munu sérfræðingar ræða getu, samhæfingu og ábyrgð – og hvernig Ísland og samstarfsríki geta tryggt öryggi á einu af mest krefjandi svæðum heims.

Dagskrá

Erindi halda meðal annars:

  • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
  • Auðunn Friðrik Kristinsson, forstöðumaður aðgerðarsviðs Landhelgisgæslu Íslands
  • Antonio Rolla, verkefnastjóri hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, vinnur að gervihnattaleiðsögn, neyðarsamskiptum úr geimnum og tækniþróun í leit og björgun
  • Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu
  • Guðbrandur Örn Arnarson, aðgerðasviði Slysavarnafélagsins Landsbjargar
  • Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands
  • Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri

Nýjast