Karlalið Þórs tryggði sér í gær sæti í úrvalsdeild karla í handbolta í fyrsta skipti frá árinu 2021 með stórsigri á B liði HK 37- 29, í lokaumferð 1. deildarinnar. Þórsarar léku vel í vetur og eru vel að deildarmeistaratitlinum komnir.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar leggur til að hafið verði formlegt ferli við breytingu á aðalskipulagi fyrir hluta Hrísalundarsvæðisins. Tillagan nær að lóðunum Hrísalundi 1, 3 og 5 og felur í sér að svæðið fái breytta landnotkun sem skapi aukin tækifæri til blandaðrar byggðar.
Í tilkynningu frá Björgunarsveitinni Garðari rétt í þessu kemur fram að sveitin hafi verið kölluð út þegar bátur strandaði á skeri rétt utan við Húsavík
„Við stefnum á að safna 5000 undirskriftum,“ segir María Pálsdóttir hælisstýra á Hælinu, setri um sögu berklanna en hún setti af stað undirskriftalista á dögunum vegna stöðunnar á Kristnesi. Þar er skorað á stjórnvöld að bjarga endurhæfingunni á Kristnesi með því að bregðast við án tafar og tryggja fjármagn til nauðsynlegs viðhalds og uppbyggingar á Kristnesi svo ekki þurfi að draga úr eða leggja niður starfsemina. Listinn er í gangi á island.is og hægt að rita undir áskorun til loka þessa mánaðar.
Hríseyjarhátíðin fer fram um komandi helgi og stendur frá föstudegi til sunnudags. Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a. í garðakaffi, óvissuferðum um eyjuna, fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.
Á lungnamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri stendur nú yfir metnaðarfullt tilraunaverkefni um fjarvöktun einstaklinga með langvinna lungnasjúkdóma sem hjúkrunarfræðingar sinna. Verkefnið hófst í febrúar og stendur yfir í eitt ár. Markmið þess er að nýta stafrænar heilbrigðislausnir til að efla þjónustu, auka öryggi sjúklinga og styðja við sjálfstæði þeirra í daglegu lífi.
Í þónokkurn tíma hef ég tekið til varna og jafnvel dáðst af umbótum alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA eftir hneykslismál 2015. Sambandið hefur frá þeim tíma stórbætt alla sína stjórnarhætti, stóraukið gagnsæi í allri ákvarðanatöku og upplýsingagjöf, sett á laggirnar ítarlegar siðareglur og hlítnireglur og stóreflt allt samráð við hagsmunaaðila. Nú lítur út fyrir að þeirri vegferð hafi verið siglt í strand og það illilega.
Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala tekur þátt í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á ME og sameinar vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúa sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada.