Akureyringar svekktir með jafntefli gegn toppliðinu

Akureyringar misstu unninn leik niður í jafntefli gegn toppliðinu. Mynd: úr safni/ Þórir Tr.
Akureyringar misstu unninn leik niður í jafntefli gegn toppliðinu. Mynd: úr safni/ Þórir Tr.

Botnliðið í Olís-deild karla í handbolta, Akureyri handboltafélag missti unninn leik niður í jafntefli gegn toppliði Aftureldingar í Mosfellsbæ í dag. Leikurinn endaði 23-23.

Ak­ur­eyr­ing­ar mættu ákveðnir til leiks og voru með yfirhöndina mest allan leikinn, þar til á loka mínútunum, þegar Afturelding náði að jafna. Hálfleikstölur voru 13-8, norðanmönnum í vil og náðu Akureyringar sex marka forystu snemma í seinni hálfleik.

Akureyringar börðust vel í leiknum og spiluðu frábæran varnarleik, Tomas Olason var einnig góður í markinu. Akureyringar urðu fyrir áfalli í fyrri hállfleik þegar skytta liðsins Karolis Stropus fór meiddu af velli og kom ekkert meira við sögu. Óttast er að hann sé með slitna hásin og bætist Stropus því á langan meiðslalista Akureyringa.

Lokatölur urðu sem fyrr segir 23-23 og var þetta fimmti leikur Akureyringa án taps. Akureyringar lyftu sé loks upp af botninum og eru í níunda og næstsíðasta sæti með 9 stig. Stjarnan er á botninum með 9 stig einig en lakara markahlutfall, en eiga leik til góða. Fram er einnig með 9 stig í áttunda sæti og spennan því gríðarleg í neðri hluta deildarinnar. Afturelding er sem fyrr á toppnum, nú með 19 stig, þremur stigum meira en Haukar í öðru sæti.

Markahæstir í liði Akureyrar voru Kristján Orri Jóhannsson og  Mindaugas Dumcius með sex mörk hvor.

Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur Aftureldingarmanna með átta mörk.

Næsti leikur Akureyringa er heimaleikur á fimmtudag gegn Selfossi og verður fróðlegt að sjá hvort Akureyringar verði áfram ósigraðir sjötta leikinn í röð.


Athugasemdir

Nýjast