Fagnar uppbyggingu líforkuvers á Dysnesi
Bæjarráð Akureyrar fagnar því að horft sé til uppbyggingar á líforkuveri á Dysnesi við Eyjafjörð og lýsir yfir fullum stuðningi við verkefnið.
Bæjarráð Akureyrar fagnar því að horft sé til uppbyggingar á líforkuveri á Dysnesi við Eyjafjörð og lýsir yfir fullum stuðningi við verkefnið.
Ný viðbygging við Verkmenntaskólann á Akureyri og endurskipulagning á eldra húsnæði sem gerð verður í kjölfarið gerir aðstöðu verknámsbrauta skólans betri og nútímalegri sagði Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA þegar samningur um byggingu 1500 fermetra nýbyggingar fyrir verknámsbrautir VMA var undirritaður. Nýbyggingin mun bæta úr aðkallandi húsnæðisþörf skólans. Ríkið greiðir 60% byggingarkostnaðar og sveitarfélög við Eyjafjafjörð, sjö talsins greiða 40% kostnaðar.
Slippurinn DNG er í óða önn að ljúka framleiðslu á ýmsum búnaði í saltfiskvinnslu Labrador Fishermen's Union á Nýfundnalandi. Þessi búnaður inniheldur meðal annars snyrtilínu, snigil, afsöltunarkerfi og forritun á allri vinnslunni.
Framkvæmdir við Lækjarmóa 2-8 í nýju Móahverfi ofan Síðuhverfis eru hafnar en þar reisir verktakinn SS Byggir fjögur fjölbýlishús með 72 íbúðum.
Í Móahverfi verða um 1.100 íbúðir sem hýsa munu um 2.400 manns. Nú þegar hefur 11 lóðum fyrir um 270 íbúðir verið úthlutað og senn verður birt auglýsing um úthlutun rað-, par- og einbýlishúsalóða vestast og efst í hverfinu.
Kæru kjósendur, undanfarnar vikur hafa verið einstaklega lærdómsríkar og gefandi. Ég tel þær jafnframt hafa verið fallega æfingu í lýðræðislegum vinnubrögðum og gaman hefur verið að kynnast öllum þessum ólíku frambjóðendum. Framboði til forseta fylgja þau forréttindi að fá tækifæri til að hitta fjölbreytta flóru fólks á öllum aldri og hvaðanæva af landinu.
Starfsfólk Útgerðarfélags Akureyringa og gestir skemmtu sér konunglega sl. laugardagskvöld í matsal félagsins. Starfsmannafélag Útgerðarfélags Akureyringa (STÚA) efndi til taílensks skemmtikvölds en hjá ÚA starfa hátt í þrjátíu manns sem rekja uppruna sinn til Taílands.
Í boði var glæsilegt og fjölbreytt hlaðborð heimagerðra taílenskra rétta, einnig skemmtiatriði í umsjá taílenska starfsfólksins.
„Veðrið hefur kannski ekki sýnt sínar bestu hliðar alla daga en það er ekki endilega veðrið sem fólk sækist eftir þegar það leggur leið sína til Íslands. Við höfum heyrt af hamingjusömum farþegum sem hafa heillast af náttúruperlunum hér fyrir norðan,“ segir Jóhanna Tryggvadóttir markaðs- og verkefnastjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands.
Björgunarsveitin Ægir sótti tvo erlenda ferðamenn út í Látur á laugardag. Höfðu þeir gengið í Látur en aðstæðir voru erfiðar og treystu þeir sér ekki til að ganga til baka.
Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi Akureyrarbæjar segir að lausar lóðir í Holtahverfi norður verði auglýstar að nýju. „Það er erfitt að segja til um hvað veldur því að ekki berist fleiri umsóknir um þessar lóðir, en það er auðvitað ljóst að vaxtastig er mjög hátt í landinu og það fælir eflaust marga frá.“
Það er draumur hvers manns að skapa og miðla með öðrum. Með það í huga hef ég á síðustu árum skapað hin ýmsu verk sem ég staðset svo í garðinum við heimili mitt.
Ég er hreinræktaður alþýðulistamaður og hef því aldrei farið í listaskóla né tekið nokkurt námskeið í sköpun eða list. Verkin mín eru því sprottin upp úr engu öðru en sköpunarþörf og eru því án áhrifa frá utanaðkomandi straumum og stefnum og standa utan hins viðurkennda listheims.
Ég hef fundið fyrir áhuga ferðamanna og ekki síður Íslendinga á að skoða verkin mín og varð það til þess að ég opnaði fyrir aðgang almennings að garðinum mínum.
,,Réttu bónda baggaspotta og hann reddar málunum“. Ég á gamla girðingu. Ég veit ekki alveg hversu gömul hún er, en þegar ég var að skottast með pabba í girðingarvinnu fyrir 40 árum síðan, þá var þetta ,,gamla girðingin“. Á hverju ári er gengið með gömlu girðingunni, reknir naglar í fúna staura, netið hengt upp, skipt um brotnu staurana og búta af gaddavír. Hún þarf bara að halda, ekki vera neitt augnayndi. Og hún er sannarlega ljót, víða búið að sauma saman netið með baggaspottum. En gerir sitt gagn, í augum sauðkinda lítur hún út fyrir að vera sterkari en hún er. Það er lengi hægt að tjasla í það sem ónýtt er, bæta við baggaböndin og styrkja lélegustu kaflana.
Ef ekki væri árlegt viðhald á gömlu girðingunni þá myndi hún fljótt leggjast alveg flöt og verða endanlega ónýt.
Þann 1. júní næstkomandi kjósum við okkur forseta. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn nauðsynlegt að velja í stólinn sterkan einstakling sem talar skýrt og óhikað um nauðsyn þess að koma í veg fyrir afsal íslenskra auðlinda. Þó ekki með fallegu tali kringum hluti til að snapa inn fölsk atkvæði, heldur með skýru tali um að Landsvirkjun verði ekki seld til erlendra fjármálaafla á hans vakt og vindmyllum í eigu erlendra fjármálaafla verði ekki hleypt inn á orkukerfi landsins til að arðræna og menga með fölskum fyrirheitum og lygum um "græna" orku.
Dýrleif Bjarnadóttir, fyrrum píanókennari um árabil við Tónlistarskólann á Akureyri og íbúi á Hlíð, opnaði nýverið einkasýninguna: Pennasafnið mitt ,,Brot af því besta." Þar er að finna penna alls staðar að úr heiminum og á hver og einn þeirra sína sögu sem hægt er að lesa um. Dýrleif hóf pennasöfnun ung að árum og eru elstu pennar safnsins orðnir ansi gamlir. Hún byrjaði á að geyma alla óvejulegu pennana sem henni áskotnuðust og einnig þá sem bjuggu til minningar. Pennarnir í safni Dýrleifar eru um 500 talsins.
Reksturinn hjá Laxá Fiskafóður gekk vel á liðnu ári líkt og venja hefur verið undanfarin ár. Framleiðsla nam 11 þúsund tonnum og velta var 3.600 milljónir. Markaðshlutdeild fyrirtækisins í sölu á fiskeldisfóðri til landeldisstöðva fyrir seiði og matfisk er um 80%.
Að þessu sinni brautskráðust 140 nemendur með 162 skírteini þar sem 22 nemendur útskrifuðust með tvö skírteini. Á þessu skólaári hafa því samtals útskrifast 228 nemendur því 88 nemendur voru útskrifaðir í desember sl
„Þetta verður góð viðbót fyrir okkur og veitir ekki af að styrkja kerfið sem mest,“ segir Anton Benjamínsson verkefnastjóri hjá Norðurorku og vísar til þess að verkefni sem snýst um að nýta glatvarma frá álþynnuverksmiðju TDK til upphitunar á bakrásarvatni úr kerfum Norðurorku. Gert er ráð fyrir að skili um 10m MW inn í hitaveitukerfi Norðurorku.
Framkvæmdir við lagnir hefjast á næstu dögum, en þær liggjafrá gatnamótum Hörgárbrautar og Hlíðarbrautar á Akureyri þar sem heitt vatn kemur inn til Akureyrar og í verksmiðju TDK, önnur að verksmiðjunni og hin frá henni. Skrifað var undir viljayfirlýsingu fyrir rúmu ári á milli Norðurorku og TDK um að kanna fýsileika þessa verkefnis. Unnið hefur verið að frumhönnun, kostnaðaráætlun og tímalínu verkefnisins auk áfangaskiptingar
Ólöf Björk Sigurðardóttir var útnefnd sem heiðursfélagi Skautafélags Akureyrar fyrir störf sín fyrir félagið á aðalfundi þess sem fram fór í á dögunum. Ólöf Björk, sem lét af formennsku íshokkídeildar fyrr í vikunni, var formaður íshokkídeildar í 20 ár og sat í aðalstjórn Skautafélags Akureyrar í 15 ár.
Tónlistarveisla í boði Tónasmiðjunnar í Húsavíkurkirkju
Við sem fylgjum Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda erum kát þessa dagana. Þvílíkur meðbyr og kúvending sem átt hefur sér stað allt frá fyrstu kappræðunum á RÚV.
Þetta kemur okkur reyndar ekki á óvart þar sem við sem þekkjum Höllu vitum hvað í henni býr. Hún sýndi þjóðinniþað líka fyrir 8 árum þegar hún skaust frekar óvænt á stjörnuhimininn nokkrum dögum fyrir kosningar og endaði í 2. sæti
,,Heilbrigð sál í hraustum líkama”. Þetta er setning sem við höfum flest heyrt áður, og er víða notuð. Mörg þekkjum við líka ýmsar leiðir til að stuðla að hraustum líkama; atriði sem við koma hreyfingu, mataræði og heilbrigðisþjónustu. Hrausti líkaminn er áhugamál margra, hann er umræðuefni á kaffistofum og í fjölskylduboðum. Við vitum að hraustur líkami er ekki sjálfgefinn, og að það er ævilöng vinna að styrkja hann og hlúa að honum.
„Arctic Creatures“ er samvinnuverkefni þriggja íslenskra æskuvina; myndlistarmannsins Hrafnkels Sigurðssonar, kvikmyndagerðarmannsins / leikstjórans Óskars Jónassonar og leikarans / leikhúsleikstjórans Stefáns Jónssonar. Frá árinu 2012 hafa þeir unnið að einstöku verkefni sem sameinar sköpunarhæfileika þeirra og áhugamál.
„Það hlýtur öllum að vera það ljóst að svona getur þetta ekki gengið lengur og mikilvægt að koma þessum málum í betri farveg,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson oddviti sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og varaformaður fjárlaganefndar um líkhúsmálið sem verið hefur til umræðu undanfarið. Kirkjugarðar Akureyrar hafa lýst yfir miklum rekstrarvanda og að þegar sé búið að skera niður allt sem hægt er. Fátt annað sé eftir en að loka starfsemi líkhússins.
Í tilefni af síðustu dögum sýningar Guðnýjar Kristmannsdóttur, Kveikja, í Listasafninu á Akureyri verður boðið upp á listamannaspjall með Guðnýju næstkomandi laugardag, 25. maí, kl. 15. Stjórnandi er Hlynur Hallsson, safnstjóri, og munu þau m.a. ræða um tilurð sýningarinnar, vinnuaðferðir og einstaka verk. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag, 26, maí, en þá mun einnig ljúka einkasýningum Sigurðar Atla Sigurðssonar, Sena, og Alexanders Steig, Steinvölur Eyjafjarðar.
Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar var haldinn í í KA-Heimilinu á þriðjudaginn þar sem Eiríkur S. Jóhannsson formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og liðið ár. Síðasta rekstrarár var það stærsta í sögu félagsins og hefur velta félagsins aldrei verið jafn mikil eins og árið 2023.
Á samfélagsmiðlum fer síða undir nafninu Norðurvín víða þessa dagana. Eigendur síðunnar fylgja Norðlendingum á samfélagsmiðum í von um að þeir fylgi þeim til baka og eru með gjafaleiki þar sem inneignir í óopnaðri áfengisverslun eru í verðlaun.
búum sveitarfélagsins hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og samhliða því orðið sífellt meiri eftirspurn eftir húsnæði. Vegna þessarar miklu eftirspurnar samþykkir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tímabundna heimild til niðurfellingar gatnagerðagjalda. Tíðindin eru hin gleðilegustu og liðka vonandi til fyrir þeim sem vilja byggja.
Mara Mars gestalistamaður Gilfélagsins í maí, opnar sýningu í Deiglunni föstudagskvöldið 24.maí kl.19.30 og stendur opnunin til 21.30. Sýningin verður opin helgina 25. -26. maí frá kl. 14 -17 báða dagana.