Janez Vrenko skrifaði í gær undir eins árs samning við meistaraflokk Þórs í knattspyrnu. Vrenko hefur leikið með KA síðan
árið 2006 en þessi 29 ára slóvenski varnarmaður á 97 leiki að baki með KA í deild og bikar.
Ný og endurbætt A-álma hefur verið tekin í notkun í Glerárskóla. Gestum bauðst að líta á þær heilmiklu breytingar sem gerðar hafa verið á álmunni, en húsnæðið hefur verið endurnýjað á þann hátt að miklar breytingar hafa verið gerðar á vinnuumhverfi nemenda og starfsfólks.
Afköst í fiskvinnsluhúsum Samherja dragast verulega saman þegar keyptur er afli af strandveiðibátum til vinnslu. Starfsmaður sem hefur unnið í tæpa fimm áratugi hjá Útgerðarfélagi Akureyringa segir sláandi mun á gæðum hráefnis frá smábátum og togurum sem veiða á djúpslóð. Bónusar fiskvinnslufólks lækka þegar unninn er afli frá smábátum því mun tímafrekara er að verka fiskinn.
Vísir birti nýlega frétt um nýútkomna skýrslu Viðskiptaráðs þar sem fjallað er um uppsagnarvernd opinberra starfsmanna. Sá sem fréttina ritar kýs að reyna að fá fleiri „smelli“ með því að leggja skýrsluhöfundi orð í munn eins og að kalla opinbera starfsmenn „slúbberta“.
Akureyrarbær hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig lóðum við Þursaholt verður úthlutað. Umsókn Félags eldri borgara á Akureyri, EBAK sem sótti um lausar lóðir á svæðinu var því hafnað.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur lagt til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2018-2030. Í greinargerð segir að gert sé ráð fyrir að uppbygging hefjist fyrst á svokölluðum Tjaldsvæðisreit auk þess sem unnið verði að undirbúningi uppbyggingar til blandaðrar landnotkunar á Akureyrarvelli.
Í dag er fyrsta beina flug sumarsins til Amsterdam, en það er á vegum Verdi Travel og Transavia
Flogið verður vikulega á fimmtudögum, til 14. ágúst n.k.
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á heilbrigðisráðherra að endurskoða greiðsluþátttöku vegna sjúkradvalar innanlands og tryggja, til dæmis með greiðsluþaki, að kostnaður sjúklings og aðstandenda vegna nauðsynlegrar dvalar á sjúkrahóteli sligi ekki fólk af landsbyggðinni.