Vinnuskólinn verði færður til samfélags- og mannréttindadeildar

Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar gerir það að tillögu sinni að Vinnuskólinn verði færður frá framkvæmdadeild til samfélags- og mannréttindadeildar í þeim tilgangi að flétta betur saman starf félagsmiðstöðva og Vinnuskólans, fyrst og fremst með forvarnagildi og samnýtingu starfsfólks í huga. Breytingin myndi ekki hafa í för með sér að unglingar yrðu teknir úr hefðbundnum útiverkum við fegrun bæjarins.

Nýjast