Vinna við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar hafin

Vinna við gerð fjárhagsáætlunar er hafin og eru deildarstjórar og stjórnendur hjá Akureyrarbæ nú að fara yfir málefni deilda sinna, en gerð er krafa um 200 milljóna króna sparnað í rekstri bæjarins fyrir næsta ár.  Við það bætist að tekjur bæjarins á síðari hluta ársins eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir.  

„Þetta er verðugt verkefni að glíma við og verður örugglega erfitt að púsla þessu saman, við gerum okkar besta og reynum að hugsa sem mest í lausnum en ekki að þetta sé vandamál," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar. Stjórnendur eru þessa dagana að skoða hvar hægt er að hagræða í rekstri sinna deila og munu skila tillögum innan tíðar en Geir Kristinn segir að á þeim hvíli sú skylda að leita allra leiða til að hagræða í rekstri.  Hagræðingarkröfu upp á 200 milljónir króna í rekstri bæjarins á næsta ári hafi nýr meirihluti hlotið í arf frá fyrri bæjarstjórn og verði að vinna sem best úr því. „Ofan á þetta koma svo þau tíðindi að tekjur bæjarins eru mun minni á síðari hluta þessa árs en áætlanir gerðu ráð fyrir og það bil þurfum við að brúa líka. Geir Kristinn segir að menn leiti nú leiða til að auka tekjur bæjarins og vonast til að sjá eitthvað gerast í þeim efnum fljótlega.  Meðal þess sem til skoðunar er á vegum meirihlutans er hvort unnt verði að flýta einhverjum framkvæmdum sem voru á áætlun 2013 og 2014, „til að koma atvinnulífinu í gang og við eigum von á tillögum varðandi það á næstunni." Brýnt sé að fá hjól atvinnulífsins til að snúast hraðar, „enda teljum við það skyldu okkar þegar svona árar."

Geir Kristinn segir að sá niðurskurður sem við blasi í rekstri bæjarins sé ekki flatur, heldur verði grunnstoðum, félagsþjónustu og skólamálum hlíft umfram aðra. Hann getur þess einnig að á næsta ári komi af fullum þunga inn rekstrarkostnaður vegna tveggja nýrra bygginga, Menningarhússins Hofs og fimleikahúss við Giljaskóla.  „Við verðum að ganga hraustlega til verks," segir hann „en við munum í lengstu lög forðast að grípa til uppsagna." Þá nefnir hann að gert sé ráð fyrir að meiri- og minnihluti í bæjarstjórn vinni saman að gerð fjárhagsáætlunar líkt og gert var í fyrra og tókst vel.

Nýjast