Vilja umhverfismat á Glerárvirkjun II

Edward Hákon Huijbens hjá V-lista  og Jón Ingi Cæsarsson hjá S-lista á Akureyri telja fulla ástæðu til að framkvæma umhverfismat vegna Glerárvirkjunar II, þvert á álit bæjaryfirvalda. Það sem kallað hefur verið Glerárvirkjun II snýst um að virkja fall árinnar í dýpsta hluta Glerárgils frá göngubrú ofan fyrrum sorphauga að athafnasvæði neðan Réttarhvamms. Í fundargerð á vegum skipulagsnefndar segir að framkvæmdin sé í samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag svæðisins sem hlotið hefur lögformlega staðfestingu.

Meirihluti skipulagsnefndar tekur undir niðurstöður skýrslu Eflu fyrir hönd Fallorku um að framkvæmdin muni hafa óveruleg umhverfisáhrif. Því telur meirihluti skipulagsnefndar að ekki sé ástæða til að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

Þessu eru Edward og Jóni Ingi ósammála og benda á margar ástæður því til stuðnings; engar fullnægjandi rannsóknir hafi verið gerðar á rennsli Glerár á virkjunarsvæðinu, jarðfræði virkjunarsvæðisins er að mestu ókönnuð, áhrif þess á umhverfi og náttúru að taka bróðurhluta vatnsrennslis úr Glerárgili efa, sem er á náttúruminjaskrá hafa ekki verið metin, áhrif framkvæmda á útivist og ferðamennsku hafa ekki verið metin á fullnægjandi hátt og að safna vatni í þessu magni ofan byggðar á Akureyri, þar sem Glerá rennur neðar um íbúðahverfi, veki upp spurningar sem verður ekki svarað án ofangreindra rannsókna.

-þev

 

Nýjast