Í nýrri ferðamálastefnu Akureyrarbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn í lok desember á að leita á leiða eftir fjárfestingu einkaaðila í afþreyingarmöguleikum sem hafa mjög mikið aðdráttarafl þannig að meirihluti ferðamanna heimsæki eða nýti sér. Í þeim efnum verður kannað sérstaklega hvort kláflyfta á topp Hlíðarfjalls geti orðið að veruleika sem einkaframkvæmd. Gerð verði gróf áætlun eða eldri áætlun uppfærð um byggingarkostnað kláflyftu fyrir lok árs 2017.
Hugmyndir um kláf í Hlíðarfjalli eru ekki nýjar af nálinni en í deiluskipulagi fyrir skíðasvæðið á að rísa nýtt þjónustuhús á reitnum niður við Fjarkann og kláfur í framhaldi af því. Þá hefur Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar (AFE) einnig lagt til að byggt verði upp öflugt lyftukerfi og er kláfur á topp Hlíðarfjalls hluti af þeirri hugmynd.