Kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson úr KFA er íþróttakarl Akureyrar árið 2020 og skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA er íþróttakona Akureyrar 2020. Í öðru sæti voru þau Miguel Mateo Castrillo blakari úr KA og Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr UFA. Í þriðja sæti voru Þorbergur Ingi Jónsson utanvegahlaupari úr UFA og Gígja Guðnadóttir blakari úr KA.
Kjöri íþróttamanns Akureyrar 2020 var lýst á verðlaunahófi á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og frístundaráðs Akureyrarbæjar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi í gær. 14 aðildarfélög ÍBA tilnefndu alls 38 íþróttamenn úr sínum röðum, 17 íþróttakonur og 21 íþróttakarl. Úr þeim tilnefningum var svo kosið á milli 10 karla og 10 kvenna sem stjórn Afrekssjóðs hafði stillt upp.
Á athöfninni veitti frístundaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar til 8 aðildarfélaga ÍBA vegna 140 Íslandsmeistara á síðasta ári og Afrekssjóður veitti 10 afreksefnum styrki. Samtals hlutu 20 einstaklingar afreksstyrki fyrir samtals rúmar 5 milljónir á athöfninni í kvöld/gær.
Aldís Kara er íþróttakona Akureyrar annað árið í röð sem og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands annað árið í röð. Þannig skipar Aldís Kara sig í sessi sem besti skautari landsins. Á árinu 2020 keppti Aldís Kara á RIG2020 þar sem hún fékk 113.54 stig og náði lágmörkum á heimsmeistaramót unglinga í stuttu prógrami, þá í annað sinn á keppnistímabilinu. Á Norðurlandamótinu í Stavanger í Noregi fékk Aldís Kara 115.39 stig, sem er jafnframt hæsti stigafjöldi sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti. Á mótinu náði Aldís Kara lágmarks stigum fyrir heimsmeistaramót unglinga í frjálsu prógrammi og varð þar af leiðandi fyrsti skautari Íslands sem nær þeim árangri. Aldís Kara keppti á heimsmeistaramóti unglinga í Tallin í Eistlandi. Þar stóð hún sig með prýði og endaði í 35. sæti af 48 keppendum.
Viktor á langan afreksferil að baki og er þetta í fimmta skipti sem hann er kjörinn íþróttakarl Akureyrar. Á árinu 2020 varð Viktor í fyrsta sæti á Reykjavík International Games í klassískum kraftlyftingum. Á Íslandsmótinu í réttstöđulyftu sló Viktor eina Íslandsmetiđ sem hann átti ekki sjálfur í -120kg flokki, þegar hann lyfti 338kg. Viktor lenti í öđru sæti í stigakeppninni eftir harđa baráttu viđ ríkjandi heimsmeistara í réttstöđulyftu. Viktor keppti í -105kg flokki á Íslandsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum þar sem hann tvíbætti Íslandsmetin í bekkpressu og réttstöđulyftu og þríbætti íslandsmetin í samanlögđu. Viktor er stigahæsti klassíski kraftlyftingamađur ársins 2020 hjá Kraftlyftingasambandi Íslands.
Á athöfninni voru kynntar heiðursviðurkenningar sem frístundaráð Akureyrar veitti þremur einstaklingum fyrr í dag fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta á Akureyri. Hreiðar Jónsson fékk viðurkenningu fyrir áratuga starf í þágu íþrótta, m.a. frjálsíþrótta og handbolta á Akureyri. Ívar Sigmundsson fékk viðurkenningu fyrir áratuga starf í þágu skíðaíþrótta á Akureyri og Íslandi. Ingibjörg Anna Sigurðardóttir fékk viðurkenningur fyrir mikið og óeigingjarnt starf í heilsueflingu almennings í vatnsleikfimi.
Þetta er í 42. sinn sem íþróttamaður Akureyrar er kjörinn en það var fyrst gert árið 1979. Alls hafa 25 einstaklingar hlotið þetta sæmdarheiti, oftast allra júdókappinn Vernharð Þorleifsson, sjö sinnum alls.
Íþróttamenn Akureyrar 1979-2020:
1979   Gunnar Gíslason, handknattleikur og knattspyrna
 1980   Haraldur Ólafsson, lyftingar
 1981   Haraldur Ólafsson, lyftingar
 1982   Nanna Leifsdóttir, skíði
 1983   Nanna Leifsdóttir, skíði
 1984   Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
 1985   Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
 1986   Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
 1987   Halldór Ómar Áskelsson, knattspyrna
 1988   Guðrún H. Kristjánsdóttir, skíði
 1989   Þorvaldur Örlygsson, knattspyrna
 1990   Valdemar Valdemarsson, skíði
 1991   Rut Sverrisdóttir, sund
 1992   Freyr Gauti Sigmundsson, júdó
 1993   Vernharð Þorleifsson, júdó
 1994   Vernharð Þorleifsson, júdó
 1995   Vernharð Þorleifsson, júdó
 1996   Vernharð Þorleifsson, júdó
 1997   Ómar Halldórsson, golf
 1998   Vernharð Þorleifsson, júdó
 1999   Vernharð Þorleifsson, júdó
 2000   Ingvar Karl Hermannsson, golf
 2001   Vernharð Þorleifsson, júdó
 2002   Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
 2003   Andreas Stelmokas, handknattleikur
 2004   Rut Sigurðardóttir, Tae Kwon Do
 2005   Guðlaugur Már Halldórsson, akstursíþróttir
 2006   Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
 2007   Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíði
 2008   Rakel Hönnudóttir, fótbolti
 2009   Bryndís Rún Hansen, sund
 2010   Bryndís Rún Hansen, sund
 2011   Bryndís Rún Hansen, sund
 2012   Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrna
 2013   Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
 2014   Hafdís Sigurðardóttir, frjálsar íþróttir
 2015   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
 2016   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
 2016   Bryndís Rún Hansen, sund
 2017   Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
 2017   Stephany Mayor, knattspyrna
 2018   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
 2018   Hulda B. Waage, kraflyftingar
 2019   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
 2019   Aldís Kara Bergsdóttir listhlaup
 2020   Viktor Samúelsson, kraftlyftingar
 2020   Aldís Kara Bergsdóttir, listhlaup