Viðurkenningin er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til. Foreldrar, nemendur, kennarar, skólar og bæjarstofnanir geta tilnefnt verkefni í skóla til viðurkenningar. Tilnefna má nýbreytniverkefni um hvaðeina í skólastarfi sem unnið hefur verið að á yfirstandandi skólaári, nemendavinnu, vinnu hópa eða einstaklinga, upplýsingamiðlun (s.s. heimasíður og fréttabréf), stefnumótun og skipulag, starf eins kennara eða samvinnu þeirra, verkefni í almennri kennslu, sérgreinum eða sérkennslu, framlag annars starfsfólks skólans, forvarnarstarf, félagsstarf eða foreldrasamstarf.
Skólar setja sér reglur um það hvaða nemendur þeir tilnefna til viðurkenninga og senda til valnefndar. Tilnefningar eru óháðar aldri. Viðurkenningu má veita fyrir góðan námsárangur, góðar framfarir í námi, virkni í félagsstarfi, að vera jákvæð fyrirmynd, sýna frumkvæði eða leiðtogahæfileika, frábæra frammistöðu í íþróttum eða listum, listsköpun eða tjáningu í skólastarfi, félagslega færni, samskiptahæfni og framlag til að bæta eða auðga bekkjaranda/skólaanda, nýsköpun og/eða hönnun.
Tilnefningar skulu berist rafrænt fyrir 9. maí ár hvert. Viðurkenningar verði afhentar í lok skólaársins og verður tímasetning auglýst í maí ár hvert. Hægt er að leggja inn tilnefningu á vefsíðu skóladeildar. Þetta kemur fram á vef bæjarins.