Viðskiptastjóra Arion banka á Akureyri var sagt upp störfum og gert að hætta strax fyrr í þessum mánuði vegna gruns um saknæmt athæfi hans í störfum hjá bankanum. Fréttablaðið sagði fyrst frá.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka hefur staðfest að starfsmaður bankans á Akureyri sé talinn hafa gerst brotlegur við reglur bankans og hafi verið látinn fara um leið og upp komst um málið.
„Ég get staðfest það að málið er til skoðunar innan bankans og varðar brot á reglum sem geta valdið bankanum fjárhagstjóni, að öðru leyti get ég ekki rætt um málið á þessari stundu,“ sagði Haraldur Guðni í samtali við Fréttablaðið og um það sama var uppi á teningnum þegar dagskrain.is leitaði svara.
Samkvæmt heimildum Frétttablaðsins átti viðskiptastjórinn sjálfur í ýmsum viðskiptum og nýtti sér stöðu sína að því leyti. Fyrir vikið var hætta á að tjón gæti skapast fyrir bankann því ekki var tryggt að hagsmunir bankans væru hafðir í öndvegi þegar hans eigin viðskipti voru undir.
Málið hefur ekki verið tilkynnt lögreglu en er litið alvarlegum augum innan bankans þar sem það er til skoðunar. Ekki er útilokað að málið verði sent til lögreglu ef innanbúðaskoðun bankans gefur tilefni til þess. /EPE