04. nóvember, 2010 - 18:07
Fréttir
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Norðurorku hf.
en fyrirtækið óskaði eftir viðræðum við bæjaryfirvöld vegna rannsókna og vinnslu á hauggasi (metangasi) úr sorphaugunum á
Glerárdal. Auk Norðurorku hefur Metanorka ehf. leitað eftir því að fá að gera rannsóknir á hauggasi á sorphaugum bæjarins
á Glerárdal.
Norðurorka hefur hug á gera rannsóknir á hauggasi til metangasvinnslu, með það að markmiði að framkvæma nauðsynlegar boranir,
afkastamælingar og úrvinnslu þeirra. Það þurfi að gera til að hægt sé að svara því hvort nægilegt gas sé til
staðar fyrir koltrefjaverksmiðju á Akureyri.