31. maí, 2011 - 21:50
Fréttir
Viðar Sigurjónsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu. Þetta staðfesti Unnsteinn Jónsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs í samtali við Vikudag rétt í þessu. Hlynur Svan Eiríksson hefur verið ráðinn í hans stað og
stýrir því Þór/KA gegn Fylki á morgun er liðin mætast á Þórsvelli í Pepsi-deildinni.
Að sögn Unnsteins er samkomulag milli stjórnar Þórs og Viðars um að hann hætti störfum. Siguróli „Moli“ Kristjánsson
hættir einnig sem aðstoðarþjálfari.
Hlynur Svan þjálfaði síðast lið Magna árið 2009 en hefur undanfarið þjálfað 2. flokk hjá Þór.